Ókeypis tónleikar og námskeið fyrir nemendur tónlistarskólans á Græna Hattinum, fimmtudaginn 4. mars kl. 17:00-18:30. Christian Vuust og
félagar ásamt Einari Má munu blanda saman tónlist og ljóðlist. Nemendur eru hvattir til að mæta á þennnan viðburð.
Dagur tónlistarskólanna er laugardaginn 27. febrúar. Þá verður margt að gerast innan skólans; tónleikar í Ketilhúsi og
Eymundsson, smiðjur og hljóðfærakynningar í skólanum.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Strengjasveit Tónlistarskólans á Akureyri.
Tónleikar í Akureyrarkirkju sunnudaginn 14. febrúar kl. 16:00
Á þessum tónleikum teflum við saman nýrri og gamalli tónlist. Fluttur verður fiðlukonsert eftir Hauk Tómasson þar sem Sigrún
Eðvaldsdóttir fiðluleikari leikur einleik. Aðgangur er ókeypis fyrir nemendur Tónlistarskólans.
Tónlistarskólinn á Akureyri býður byrjendum upp á ódýrt og skemmtilegt nám á
málmblásturshljóðfæri. Kennt verður á trompet, kornett, básúnu, baritón-horn og túbu í 2-3 manna
hópum og kennslan fer fram í Brekku-Gilja-og Oddeyrarskóla.
Nú býðst nemendum á framhaldsstigi nýr valáfangi sem kallast “hljómsveitaraðstoð og útsetningar”.
Áfanginn felur í sér að aðstoða nemendur í Sinfóníuhljómsveit Tónak eða Stórsveit Tónak á
æfingum.
Atli Örvarsson, Akureyringur og fyrrverandi nemandi Tónlistarskólans, er að gera það gott í Los Angeles sem
kvikmyndatónskáld. Diskur með tónlist Atla við myndina The Fourth Kind er gefinn út m.a. á i-tunes, Amazon og
víðar. Atli lærði á trompet í Tónlistarskólanum á Akureyri hjá Atla Guðlaugssyni og Roari Kvam. Atli
Minnum á Tónsmíðakeppni skólans. Frestur til að skila inn lögum rennur út 8. janúar næstkomandi. Allir
nemendur Tónlistarskólans geta tekið þátt. Skila þarf tónsmíðinni á nótum eða á geisladiski