Miðtónfræði og tónheyrn, klassísk - hraðferð
Þrep: 2
Einingar: 3
Forkröfur: Grunnpróf í tónfræði
Lýsing: Þessi vetur langi áfangi er ætlað þeim nemendum sem vilja ljúka miðprófi í tónfræði og tónheyrn á einu ári. Í áfanganum er farið í undirstöðuatriði hljómfræði og stutt ágrip af tónlistarsögu. Hluti námsins er valverkefni sem getur verið t.d. tónsmíð, vefsíða eða ritgerð.
Námsmat: Á vorönn, venjulega í lok mars, er tekið samræmt próf frá prófanefnd tónlistarskóla.