Mið- og framhaldnám í Klassískri Tónlist
Nemendur sem lokið hafa námi í grunntónfræði G2 sækja miðnám í tónfræði sem miðað er að þeirri námsleið sem þeir leggja stund á hvort sem það er klassísk tónlist, ritmísk tónlist eða skapandi tónlist. Áfangarnir eru misjafnir að gerð og lagaðir að viðfangsefninu. Í miðnámi bætast við nýjir áfangar auk þess sem nemendur geta valið ýmsa valáfanga sem vekja áhuga þeirra. Nemendur sem velja að stunda nám í klassískri tónlist sækja áfanga samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskóla sem gefin er út af Mennta-, og menningarmálaráðuneytinu. Framkvæmd miðprófa í tónfræðigreinum er í höndum Prófanefndar Tónlistarskóla sem fer einnig með vottun námsmats og er hægt að nálgast frekari upplýsingar um prófin og skipulag Prófanefndar HÉR. Námsmat og skipulag prófa í framhaldstónfræðagreinum er í höndum skólans.