Hljómborðsfræði
Í hljómborðsfræði er nemendum kennd grunntækni í hljómborðsleik samtvinnað með tónfræði og nótnalestri. Nemendur læra þessi atriði í gegnum æfingar og verkefni í tíma. Kennslan fer fram í hljómborðsveri tónlistarskólans, þar sem nemendur vinna sín verkefni á rafmagnshljómborð undir beinni leiðsögn kennara.
Unnið er með tónfræðilegan þátt námsins á töflu, í virkum samskiptum á milli kennara og nemenda.
Námsgögn eru námsefni eftir Ástvald Traustason, Hljómar í bókstaflegum skilningi, bækur 1 og 2
Að lokinni haustönn á ári eitt, á nemandi að geta lesið einfaldar laglínur og hljómatákn og spilað með báðum höndum: hljómar í vinstri hendi og laglínur í hægri hendi, ásamt því að hafa öðlast þekkingu á helstu grunnatriðum tónfræði. Að lokinni vorönn á nemandi að geta lesið nokkuð flóknari laglínur, hryn og hljómatákn og spilað með báðum höndum: bassarödd í vinstri hendi á móti hljómum með laglínu í hægri hendi. Nemandi á einnig að hafa öðlast, fyrir utan almenna tónfræði, nokkra innsýn í grunnþætti hljómfræði.