Hljóðfærafræði og útsetningar, rytmískar
Þrep: 3
Einingar: 3
Forkröfur: F1, rytmísk tónfræði og tónheyrn
Lýsing: Nemendur læra um tónsvið hljóðfæra og eiginleika hvers tónsviðs. Skoðað verður hvernig tónlistarmenn í gegnum tíðina hafa blandað saman hljóðfærum og útsett verk sín til að ná fram ákveðnum hljómi og tilfinningu. Nemendur útsetja einföld lög og jafnvel eigin tónsmíðar fyrir rytmískar hljóðfærasamsetningar.
Námsmat: Vinna nemenda verður metin reglulega yfir önnina með verkefnum, svo og ástundun og mætingu. Nánar er kveðið á um námsmat í kennsluáætlun