Fara í efni

Fréttir

Þorgerðartónleikar

Þorgerðartónleikar Mánudaginn 17. mars 2014 kl. 20:00 verða haldnir tónleikar í Hofi til styrktar minningarsjóði um Þorgerði S. Eiríksdóttur. Þorgerður lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og var nýkomin til London í framhaldsnám er hún lést af slysförum í febrúar 1972. Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þorgerðar ásamt Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar minningarsjóð, til að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til framhaldsnáms.

Nótan 2014

Nótan verður á laugardaginn 15. mars. 
Tvennir tónleikar í Hamraborg. Þeir fyrri verða kl. 12:30 og þeir seinni kl. 14:00. Afhending viðurkenninga kl. 15:30.

Föstudagsfreistingar

Hádegistónleikaröð Tónlistarfélags Akureyrar, Föstudagsfreistingar er löngum orðin þekkt meðal Akureyringa. Að þessu sinni koma fram söngkonurnar Helena Guðlaug Bjarnadóttir og Eyrún Unnarsdóttir ásamt Daníeli Þorsteinssyni píanóleikara. Þau munu flytja dúetta eftir Mendelssohn. 1862 Nordic Bistro matreiðir súpu sem tónleikagestir geta notið á meðan tónleikum stendur. Hugljúf stund í hádeginu í Hofi!

Bolludagstónleikar

Bolludagstónleikar Verða haldnir í Giljaskóla á vegum strengjasveita Tónlistarskólans á Akureyri sunnudaginn 2. mars kl. 15:00. Nemendur bjóða upp á fjölbreytta tónlist og selja í leiðinni ljúffengar heimagerðar rjómabollur og kaffi. Ágóði sölunnar rennur óskertur í ferðasjóð þeirra. Verð 1500 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn og unglinga og er hver aðgöngumiði einnig happdrættismiði. (Ekki posi) Foreldrafélag strengjanemenda

Enginn titill

 Bolludagstónleikar Verða haldnir í Giljaskóla á vegum strengjasveita Tónlistarskólans á Akureyri sunnudaginn 2. mars kl. 15:00. Nemendur bjóða upp á fjölbreytta tónlist og selja í leiðinni ljúffengar heimagerðar rjómabollur og kaffi. Ágóði sölunnar rennur óskertur í ferðasjóð þeirra. Verð 1500 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn og unglinga og er hver aðgöngumiði einnig happdrættismiði. (Ekki posi) Foreldrafélag strengjanemend

Á stefnumótum-kammertónleikar

Á stefnumótum-kammertónleikar Þóra Kristín Gunnarsdóttir, píanó, Stephanie Sutterlüty, óbó, og Barbara Hess, víóla, flytja verk eftir Claude Debussy, Francis Poulenc, Rebecca Clarke og August Klughardt í Hofi sunnudaginn 2. mars klukkan 20.00.

Forval fyrir Nótuna

Í dag kl. 17:30 verður forval fyrir Nótuna í Hömrum. Allir hjartanlega velkomnir.

Borgar rekstur tónlistarskólanna sig?

Tónlistarskólanum á Akureyri barst þessi blaðagrein sem birtist í morgunblaðinu og vikudegi frá Jóni Hlöðveri Áskellssyni í tilefni Dags tónlistarskólanna sl. laugardag en um 1000 manns tóku þátt í deginum sem lukkaðist framan vonum. Kennarar og nemendur skólans þakka gestum innilega fyrir komuna á þessum frábæra degi.