Pollapönk á morgun
23.04.2014
Pollapönk á morgun
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ásamt 250 nemendum TA flytur pönk í fyrsta sinn á á 20 ára ferli sínum á sumardaginn fyrsta 24. apríl kl. 16:00 í Hofi með Evróvisjónfarana Pollapönk í fararbroddi. Undirbúningur stendur sem hæst og mikið fjör og gleði einkennir allan undirbúninginn í sannkölluðum anda Pollapönks. Á tónleikunum verða vinsælustu lög Pollapönks flutt og að sjálfssgöðu Evróvisjónlagið sjálft. Það er uppselt á tónleikana.
Það er að mörgu að hyggja við undirbúning tónleikanna framundan, meðal annars þarf að tryggja að hljómsveitarstjórinn Guðmundur Óli Gunnarsson sé rétt klæddur. Hann mun bregða út af vananum og í stað hefðbundinna kjólfata mun hann að sjálfssögðu klæðast Henson galla að hætti Pollapönksmanna á sumardaginn fyrsta í Hofi. Guðmundur Óli segir m.a. að þessu tilefni Þessi galli er stórkostlegur. Ég hef aldrei verið jafn frjáls á tónleikum. Þetta gæti jafnvel orðið að einkennisklæðnaði framtíðarinnar, Í meðfylgjandi mynd má sjá nýjasta útlit hljómsveitarstjóra SN af þessu tilefni.