Fara í efni

Ef væri ég söngvari

Til baka í söngbók

Ef væri ég söngvari

Ef væri ég söngvari

Syngi ég ljóð

:; um sólina, vorið og land mitt og þjóð;:

 

En mömmu ég gæfi

Mín ljúfustu ljóð

:; Hún leiðir mig, verndar og er mér svo góð;:

 

Ef gæti ég farið

Sem fiskur um  haf

:; ég fengi mér dýrustu perlur og raf;:

 

Og rafið ég geymdi

og gæfi ekki braut

:; en gerði´enni mömmu úr perlunum skraut;:

 

Ef kynni´ég að sauma

Ég keypti mér lín

:; og klæði ég gerði mér snotur og fín;:

 

En mömmu úr silki

ég saumaði margt

:; úr silfri og gulli, hið dýrasta skart;:

Lag: Weber
Texti: Páll J. Árdal