Viljar Niu með sitt þriðja lag á árinu
19.03.2019
Viljar Niu með sitt þriðja lag á árinu
Viljar Niu virðist vera kominn á fulla ferð. Nú um helgina kom út hans þriðja lag á árinu. Lagið ber nafnið All Seeing I, og kraftmikið og hressandi. Auk þess að syngja og pródúsera, þá mixar og masterar Viljar Niu lagið sjálfur. Lagið mun verða lag númer 8 á væntanlegri breiðskífu Viljars.
Þess má geta líka að Viljar Niu mun koma fram á Backpackers 3. apríl ásamt Shadow. Takið kvöldið frá.
Hér má hlusta á nýja lagið á Spotify:
Lagið er jafnframt komið á spilunarlista skapandi tónlistar