Viljar Niu með nýtt lag
Viljar Niu með nýtt lag
Viljar Már Hafþórsson, eða Viljar Niu eins og hann kallar sig er rappari sem hóf nám í deildinni Skapandi Tónlist síðastliðið haust. Viljar hefur sent frá sér þó nokkur lög á undanförnum árum, Lagið Possessed kom út núna um helgina, en í því lagi sér Viljar um pródúseringu, hljóðblöndun og masteringu, auk þess að ljá raddinu rödd sína.
Lagið er fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu sem Viljar er að vinna og stefnir á að gefa út fyrir þrítugsafmælið sitt, sem er 13. júní.
Possessed er komið á helstu streymisveitur. Hér má hlusta á lagið á Spotify.
Lagið er líka komið á spilunarlista skapandi tónlistar
Fyrr á árinu sendi Viljar frá sér lagið Tek upp byssu, og gerði ansi hreint skemmtilegt myndband við það, þar sem hann fer í heimsókn til ömmu sinnar. Myndbandið má sjá hér: