Fara í efni

Velkomin aftur í tónlistarskólann:-)

Velkomin aftur í tónlistarskólann:-)

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum skrifuðu Félag tónlistarkennara og Samand íslenskra sveitarfélaga undir kjarasamning hjá ríkissáttasemjara í morgun.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum skrifuðu Félag tónlistarkennara og Samand íslenskra sveitarfélaga undir kjarasamning hjá ríkissáttasemjara í morgun.

Þetta þýðir að kennsla er hafin á fullu í Tónlistarskólanum á Akureyri, eins og í öðrum tónlistarskólum, og er kennsla samkvæmt stundarskrá í dag.  Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin í skólann og hlökkum til að sjá ykkur.

Í ljósi þeirra aðstæðna sem þetta verkfall hefur skapað, þá höfum við ákveðið að framlengja uppsagnarfrestinn fyrir vorönnina.  Síðasti dagur til að segja upp námi á vorönn er samkvæmt viðskiptaskilmálum 1. nóvember, en verður núna 5. desember.