Vel heppnaðir BíóPopptónleikar Blásarasveitanna
20.03.2019
Vel heppnaðir BíóPopptónleikar Blásarasveitanna
Mánudaginn 18.mars hélt Blásarasveit Tónlistarskólans BíóPopp tónleika í Hömrum fyrir fullum sal.
Grunnsveit Tónlistarskólans spilaði sem sérstakur gestur og hóf tónleikana á tveimur hressum popplögum.
Blásarasveitin tók síðan við og spilaði verk héðan og þaðan úr kvikmyndaheiminum með myndbrotum á stórum skjá fyrir ofan.
Tónleikarnir voru hluti af fjáröflun sveitanna sem í sumar halda á stórmót skólahljómsveita í Gautaborg.
Tónleikarnir þóttu einstaklega vel heppnaðir og frábær skemmtun. Til hamingju!
myndir frá tónleikunum: