Fara í efni

Úrslit í ratleik

Úrslit í ratleik

Á degi tónlistarskólanna var efnt til ratleiks með glæsilegum vinningum. Þátttaka í leiknum var frábær og var tilkynnt um vinningshafa á hljómsveitartónleikum kl 13 í Hamraborg.

Á degi tónlistarskólanna var efnt til ratleiks með glæsilegum vinningum. Þátttaka í leiknum var frábær og var tilkynnt um vinningshafa á hljómsveitartónleikum kl 13 í Hamraborg.

Þriðju verðlaun, 3000 króna gjafabréf í Tónastöðinni, hlaut Margrét Birta.

Önnur verðlaun, 5000 króna gjafabréf í Tónastöðinni, hlaut Brynjar Orri Brynjarsson.

Fyrstu verðlaun, nám á grunnstigi við Tónlistarskólann á Akureyri skólaárið 2013-2014, fékk Herdís Ruth Brynjarsdóttir.

Innilega til hamingju og kærar þakkir þið öll sem tókuð þátt í leiknum. Sérstakar þakkir fá svo nemendurnir sem stóðu vaktina í kennslustofunum og kynntu hljóðfæri fyrir öllum fjölda barna.