Fara í efni

Uppskeruhátið tónlistarskóla-Nótan

Uppskeruhátið tónlistarskóla-Nótan

Uppskeruhátið tónlistarskóla á Norður-og Austurlandi er í Ketilhúsinu, laugardaginn 13. mars kl. 14:00 og 15:30.  Þarna koma fram tónlistarnemendur úr tónlistarskólanum á Akureyri og fleiri skólum á svæðinu sem hafa verið valdir til þátttöku af sínum skólum.  Uppskeruhátið tónlistarskólanna eða Nótan byggir á því að þátttakendur séu frá öllu landinu, á öllum aldri og að efnisskráin endurspegli ólík viðfangsefni á öllum stigum tónlistarnáms.  Á milli tónleika verður kaffisala. Kynnir á tónleikunum er Gunnar Gíslason, fræðslustjóri á Akureyri.  Í lok seinni tónleika á laugardag verða viðurkenningar afhentar og tilkynnt hverjir verða fulltrúar tónlistarskóla af svæðinu á lokatónleikum Nótunnar sem eru í Reykjavík 27. mars 2010.