Fara í efni

Tónsmíðakeppni-Skilafrestur

Tónsmíðakeppni-Skilafrestur

Minnum á Tónsmíðakeppni skólans.  Frestur til að skila inn lögum rennur út 8. janúar næstkomandi.  Allir nemendur Tónlistarskólans geta tekið þátt.  Skila þarf tónsmíðinni á nótum eða á geisladiski og koma laginu til skrifstofu skólans.

Tónsmíðin skal ekki vera lengri en 3 mínútur og má vera í hvaða stíltegund sem er, með eða án söngs. 

Tónsmíðinni skal skilað á nótum eða á diski og skal merkja nóturnar eða diskinn með dulnefni og nafni tónsmíðarinnar. Senda síðan í umslagi til Tónlistarskólans á Akureyri, merkt þannig:

Tónlistarskólinn á Akureyri, Tónsmíðakeppni

13 ára og yngri/ 14 ára og eldri (Velja annaðhvort)

Hvannavöllum 14,

600 Akureyri

Í umslaginu skal vera annað minna umslag sem inniheldur rétt nafn höfundar og símanúmer hans.

Þessi umslög má fá merkt og tilbúin á skrifstofu skólans.