Tónlistarskólinn að fara á fullt
23.08.2021
Tónlistarskólinn að fara á fullt
Nú fer að líða að skólabyrjun í Tónlistarskólanum á Akureyri. Við ætluðum að hafa formlega skólasetningu þann 26. ágúst en vegna samkomutakmarkanna verður því miður ekkert af því. Kennarar munu hafa samband við sína nemendur nú í vikunni. Kennarar og nemendur/foreldrar finna í sameiningu hentuga tímasetningu fyrir einkatímana og ræða um í hvaða tónfræði, samspili og þess háttar nemandinn verður.
30. ágúst hefst kennsla í hljóðfæragreinum og söng.
6. september hefst kennsla í tónfræðigreinum og öðrum hóptímum.
13. september hefjast æfingar í hljómsveitum og öðrum samspilshópum.
Við hlökkum til að sjá ykkur.