Tónlistardeild Listaháskóla Íslands með kynningu í Tónó.
13.03.2019
Tónlistardeild Listaháskóla Íslands með kynningu í Tónó.
Tónlistardeild Listaháskóla Íslands verður með kynningu fimmtudaginn 14. mars kl. 17:15 á bókasafninu
Kynnt verður það tónlistarnám sem í boði er á háskólastigi á Íslandi.
Eftirfarandi námsleiðir eru í boði á BA stigi við LHÍ:
- Hljóðfærakennaranám klassík braut og rytmísk braut
- Hljóðfæraleikur og söngur
- Tónsmíðar: hljóðfæra og nýmiðla
- Skapandi tónlistarmiðlun
- Kirkjutónlistarbraut
Elín Anna Ísaksdóttir, fagstjóri/verkefnastjóri, hefur umsjón með heimsókninni, en með henni í för verða nokkrir nemendur Listaháskólans, tveir þeirra frá Akureyri.