Fara í efni

Tónleikar og masterclass

Tónleikar og masterclass

Miðvikudaginn 5. janúar verða tónleikar í Hömrum 1. hæð þar sem fram kemur Greta Guðnadóttir, fiðluleikari ásamt Ingunni Hildi Hauksdóttur píanóleikara. 

Þær munu flytja verk eftir Mozart og Helga Pálsson. Tónleikarnir hefjast kl. 18.00 og er aðgangur ókeypis.

Í tengslum við tónleikana mun Greta vera með masterclass fyrir strengjanemendur sama dag í Hömrum, milli 14:00 og 17:00.
Hvetjum alla eindregið til að mæta, sérstaklega strengjanemendur.