Tónaflakk // Tónlistarmiðstöð á Akureyri
11.03.2025
Tónaflakk // Tónlistarmiðstöð á Akureyri
Tónlistarmiðstöð, í samstarfi við SSNE og Tónlistarskólann á Akureyri, stendur fyrir fræðsluviðburði á Akureyri til að kynna starfsemi sína og þá þjónustu og stuðning sem tónlistarfólk og fólk sem starfar í íslenskum tónlistargeira getur sótt til hennar. Að auki verður kynning á endurgreiðslum vegna hljóðritunar á tónlist á Íslandi og nýjum og efldum Tónlistarsjóði sem Tónlistarmiðstöð annast fyrir hönd Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis en næsti umsóknarfrestur sjóðsins er 15. apríl nk. Við hverjum öll sem koma að tónlist að fjölmenna og fræðast um hlutverk miðstöðvarinnar og hvaða aðstoð hún getur veitt.
Viðburðurinn fer fram á bókasafni Tónlistarskólans á 3. hæð í Hofi
Aðgangur er ókeypis en skráning er nauðsynleg og fer fram hér:
Kaffi og með því!