Fara í efni

Þorgerðartónleikar í Hofi

Þorgerðartónleikar í Hofi

Mánudaginn 11. mars 2013 kl. 18:00 voru haldnir tónleikar í Hofi til styrktar minningarsjóði um Þorgerði S. Eiríksdóttur.

Mánudaginn 11. mars 2013 kl. 18:00 voru haldnir tónleikar í Hofi til styrktar minningarsjóði um Þorgerði S. Eiríksdóttur.

Þorgerður lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og var nýkomin til London í framhaldsnám er hún lést af slysförum í febrúar 1972. Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þorgerðar ásamt Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar minningarsjóð, til að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til framhaldsnáms. Eru tónleikarnir helsti vettvangur til að styrkja sjóðinn, auk þess sem sjóðurinn hefur tekjur af sölu minningarkorta.

Á tónleikunum komu fram nemendur á efri stigum og fluttu fjölbreytta og skemmtilega efnisskrá.