Þorgerðartónleikar
08.03.2023
Aðgangur er ókeypis, en tekið er á móti frjálsum framlögum.
Þorgerðartónleikar
Miðvikudaginn 15. mars 2023 kl. 20:00 verða haldnir tónleikar í Hofi til styrktar minningarsjóði um Þorgerði S. Eiríksdóttur. Á tónleikunum koma fram framhaldsstigsnemendur Tónlistarskólans á Akureyri og flytja fjölbreytta og skemmtilega efnisskrá.
Aðgangur er ókeypis, en tekið er á móti frjálsum framlögum.
Þorgerður lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og var nýkomin til London í framhaldsnám er hún lést af slysförum í febrúar 1972. Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þorgerðar ásamt Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar minningarsjóð, til að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til framhaldsnáms. Eru tónleikarnir helsti vettvangur til að styrkja sjóðinn, auk þess sem sjóðurinn hefur tekjur af sölu minningarkorta.
Fyrir þá sem ekki eru með aur á sér en langar að styrkja sjóðinn með fjárframlagi er hægt að leggja beint inn á vörslureikning Minningarsjóðs Þorgerðar hjá Íslenskum Verðbréfum. kt. 530315-9910 r. 0565-26-998