Fara í efni

Þorgerðartónleikar

Þorgerðartónleikar

Þorgerðartónleikar Mánudaginn 17. mars 2014 kl. 20:00 verða haldnir tónleikar í Hofi til styrktar minningarsjóði um Þorgerði S. Eiríksdóttur. Þorgerður lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og var nýkomin til London í framhaldsnám er hún lést af slysförum í febrúar 1972. Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þorgerðar ásamt Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar minningarsjóð, til að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til framhaldsnáms.

Þorgerðartónleikar

Mánudaginn 17. mars 2014 kl. 20:00 verða haldnir tónleikar í Hofi til styrktar minningarsjóði um Þorgerði S. Eiríksdóttur.

Þorgerður lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og var nýkomin til

London í framhaldsnám er hún lést af slysförum í febrúar 1972.  Ári síðar stofnuðu

aðstandendur Þorgerðar ásamt  Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar

minningarsjóð, til að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til

framhaldsnáms.  Eru tónleikar helsti vettvangur til að styrkja sjóðinn, auk

þess sem sjóðurinn hefur tekjur af sölu minningarkorta.

Á tónleikunum koma fram nemendur  á efri stigum og flytja fjölbreytta og skemmtilega efnisskrá. Allir velkomnir.

Aðgangur er ókeypis, en tekið er á móti frjálsum framlögum í Þorgerðarsjóð.