Fara í efni

Strengjasveitir sunnan og norðan

Strengjasveitir sunnan og norðan

Strengjasveit Tónskóla Sigursveins mun halda tónleika í Hofi á Akureyri laugardaginn 2. júní kl. 17:00 ásamt Strengjasveit Tónlistarskólans á Akureyri.

Strengjasveit Tónskóla Sigursveins mun halda tónleika í Hofi á Akureyri laugardaginn 2. júní kl. 17 ásamt Strengjasveit Tónlistarskólans á Akureyri. Efnisskráin verður að mestu í höndum sunnanmanna sem munu m.a. flytja verk eftir Handel, Mozart, Warlock og McLean. Hápunktur tónleikanna er samvinna strengjasveitanna sem sameinast um flutning 3ja verkefna. Alls koma 39 hljóðfæraleikarar fram á tónleikunum. Stjórnandi er Helga Þórarinsdóttir. Allir eru velkomnir á tónleikana og aðgangur ókeypis. Strengjasveitirnar munu ljúka samspilinu með því að leika við messu í Akureyrarkirkju sunnudaginn 3. júní kl. 11.