Strengjamót á Akureyri 6.-8. október.
18.09.2023
Strengjamót á Akureyri 6.-8. október.
Foreldrafélag strengjasveita Tónlistarskólans á Akureyri og Tónlistarskólinn á Akureyri bjóða strengjanemendur landsins velkomna á Strengjamót helgina 6.-8. október.
Mótið er opið öllum strengjanemendum sem æfa munu í fjórum hljómsveitum.
Stjórnendur sveitanna eru; Ásdís Arnardóttir, Kristín Halla Bergsdóttir, Guðmundur Kristmundsson og Bjarni Frímann Bjarnason.
Mótinu lýkur svo með hátíðartónleikum í Hamraborg kl. 13 sunnudaginn 8. október og er aðgangur ókeypis.
Frekari upplýsingar veitir Eydís Úlfarsdóttir eydisu@tonak.is