Fara í efni

STEFnumót á Akureyri: Til hvers er STEF og hvernig á að fóta sig í bransanum?

STEFnumót á Akureyri: Til hvers er STEF og hvernig á að fóta sig í bransanum?

STEF stendur fyrir fræðslufundi á Akureyri í samstarfi við Tónlistarskólann á Akureyri og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra þriðjudaginn 15. október kl. 17:00 - 18:30.
Þeir Arnar Feyr Frostason og Hreiðar K. Hreiðarsson frá STEFi munu m.a. útskýra greiðsluflæði tónlistarveitna (t.d. Spotify) og fara yfir muninn á því að fá greitt sem höfundur eða sem flytjandi eða útgefandi. Einnig verður fjallað um fjárflæði vegna tónlistar í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og greint stuttlega frá starfsemi STEFs og þeirri þjónustu sem höfundum býðst.
Þá verða höfundum og upprennandi tónlistarfólki veitt holl ráð við að fóta sig í bransanum og koma sér á framfæri.
Staðsetning: Tónlistarskólinn á Akureyri (Hofi) í "samspilsstofunni" sem formlega heitir stofa 357.
Allir velkomnir, frítt inn. Gestum verður boðið uppá kaffi og kleinur.