Stefán Elí gefur út breiðskífuna Pink Smoke
Stefán Elí gefur út breiðskífuna Pink Smoke
Stefán Elí hefur nýverið sent frá sér síða þriðju breiðskífu, og ber hún nafnið Pink Smoke. Platan hefur verið rúmt ár í smíðum og hafa átta af tíu lögum plötunnar komið út áður á streymisveitum.
Platan inniheldur engu að síður tvö splunkuný lög. Annað þeirra, Alone On Earth skartar gullfallegu sópran saxafónsóli sem Phil Doyle, fagstjóri rytmískrar deildar spilar af sinni alkunnu snilld. Aðrir gestir á plötunni eru Kristján Edelstein sem spilar á gítar í Walk You to Japan, Haukur Pálmason, sem bætir við slagverki í nokkur lög, og söngvararnir Rán Ringsted, Birkir Blær, og Ivan Mendez. Það má því segja að þó nokkrir nemendur og kennarar tónlistarskólans komi að verkinu.
Stefán Elí fagnaði útkomu plötunnar í Hlöðinni, Litla Garði laugardagskvöldið 24. nóvember síðastliðinn með vinum og vandamönnumm, og við það tækifæri tók Eyþór Ingi Jónsson myndirnar hér að neðan.
Platan er sem fyrr segir fáanlega á helstu streymisveitum. Hér er t.d. hægt að hlusta á hana á Spotify: