Sóttvarnarlokun og páskafrí
26.03.2021
Sóttvarnarlokun og páskafrí
Vegna hertra sóttvarnarreglna var tónlistarskólanum, líkt og öðrum skólum lokað fimmtudaginn 25. mars og föstudaginn 26. mars, og mun skólinn verða lokaður fram á skírdag. Á þessum tíma er öll kennsla og æfingar í húsnæði skólans óheimilar. Ef nemendur geyma eitthvað í skólanum sem þarf að nálgast, er best að tala við starfsfólk skrifstofu skólans.
Við fáum svo vonandi nýjar reglur eftir páska. Samkvæmt skóladagatalinu ætti kennsla að hefjast á nýjan leik eftir páskafrí 6. apríl. Við munum senda nánari upplýsingar þegar nær dregur og við vitum hvar við stöndum.
Vonandi verður þetta bara stutt og snörp lota.
Gleðilega páska!