Fara í efni

Söngvaflóð leikskólakrakka í Hofi

Söngvaflóð leikskólakrakka í Hofi

Tónlistarskólinn á Akureyri og leikskólar bæjarins bjóða öllum bæjarbúum á söngsal í Hofi næstu daga. Nú í vetur hófst nýtt samstarfsverkefni Tónlistarskólans, grunnskólanna og leikskólanna á Akureyri og kallast það Söngvaflóð.  Fyrr í vetur komu grunnskólakrakkar í Hof og má skoða myndir frá því hér.

Dagana 6. til 8. febrúar er komið að því að tveir elstu árgangarnir á leikskólunum, börn fædd 2012 og 2013, leyfi öllum að heyra hvað þau hafa verið að syngja í vetur.

Þessir hressu krakkar munu ásamt blásarasveit Tónlistarskólans flytja lög úr bókinni Trommur og Töfrateppi eftir Soffíu Vagnsdóttur tónmenntakennara og núverandi sviðsstjóra fræðslusviðs. Allir söngsalirnir hefjast kl. 10,

Þriðjudaginn 6. febrúar hefja Naustatjörn, Hulduheimar og Iðavöllur veisluna. Miðvikudaginn 7. febrúar koma Krógaból, Lundarsel og Kiðagil í Hof og síðasta daginn, fimmtudaginn 8. febrúar er komið að Hólmasól, Tröllaborgum og Pálmholti. Allir eru hjartanlega velkomnir og er aðgangur ókeypis.