PETREA Á TÓLF TÓNA KORTÉRINU
20.10.2021
PETREA Á TÓLF TÓNA KORTÉRINU
Petrea Óskarsdóttir, flautukennari TA, kom fram á TÓLF TÓNA KORTÉRINU á Listasafninu á Akureyri laugardaginn 16. október. Þar frumflutti hún verkið THROUGH THE HAZE fyrir flautu og rafhljóð eftir Sunnu Friðjónsdóttur, og lék einnig SPOR fyrir altflautu eftir Karólínu Eiríksdóttur. Sómdu verkin sér mætavel inni á sýningu Listasafnsins og vakti flutningur Petreu mikla lukku!