Fara í efni

Óperublót söngdeildar

Óperublót söngdeildar

Óperublótið um Örvæntingafullu eiginkonurnar og eigingjörnu eiginmennina gekk framar vonum í fyrra. Nú er komið að framhaldi um þennan skrautlega vinahóp.

 

Óperublótið um Örvæntingafullu eiginkonurnar og eigingjörnu eiginmennina gekk framar vonum í fyrra. Nú er komið að framhaldi um þennan skrautlega vinahóp. Einhver brúðkaup eru í vændum og er útlit fyrir að allt gangi vel, en örlaganornirnar haga því á annan veg.
Tónlistarskólinn á Akureyri kynnir til leiks: Blindfullar brúðarmeyjar og óforsvaranlega svaramenn, sem er efnisinnihald Óperublótsins í ár og spennandi að sjá hvað dívunum dettur í hug í þetta sinn!!
Mörg af flottustu lögum söngbókmenntanna, aríur, dúettar, tríó og kórar - fléttað saman í skemmtilega og óvænta atburðarrás.
Miðasala fer fram á menningarhus.is
Komdu og kíktu
með kátínu´og skríktu !!