Fara í efni

Óperublót

Óperublót

Óperublót Tónlistarskólans á Akureyri verður haldið miðvikudaginn 28. maí kl. 20:00 í Hofi. Leikstjóri og höfundur sýningarinnar er Ívar Helgason og um tónlistarstjórn sér Daníel Þorsteinsson.

Óperublót Tónlistarskólans á Akureyri verður haldið miðvikudaginn 28. maí kl. 20:00 í Hofi. Leikstjóri og höfundur sýningarinnar er Ívar Helgason og um tónlistarstjórn sér Daníel Þorsteinsson. 

Sýningin ber heitið ÓPIÐ - endurhæfing fyrir sjúklega söngvara.
Sagan gerist á stofnun sem reynir að meðhöndla ógurlegan og bráðsmitandi faraldur sem geysað hefur um heiminn. Það einkennist af því að fólk fer að hlusta í of miklu magni á ýmiskonar tónlist og eru erfiðustu og algengustu sjúkdómseinkennin hjá  þeim sem hafa dálæti á klassískri söngtónlist. 
Til að koma í veg fyrir að smitast er eina leiðin að forðast  þá sem eiga það til að bresta í söng óundirbúið. Forðast að vera námunda við tónleikastaði og menningarviðburði almennt. Eigum við að tala um óperur?  – HLAUPIÐ OG HALDIÐ FYRIR EYRUN !!

Þátttakendur í þessari sýningu eru söngnemendur við TA sem fá þarna að spreyta sig á mörgum af fallegustu aríum, dúettum og kórum tónbókmenntanna, sem fléttast inn í þessa skemmtilegu atburðarrás.