Nemendur tónlistarskólans fyrirferðamiklir í Söngkeppni MA
Nemendur tónlistarskólans fyrirferðamiklir í Söngkeppni MA
Þriðjudaginn 2. febrúar fór fram Söngkeppni MA.
Keppnin fór fram í Kvosinni í MA, og var öll hin glæsilegasta. Hún var send út beint á Youtube, og er aðgengileg þar fyrir þá sem ekki sáu hana beint.
Við í Tónlistarskólanum á Akureyri erum afskaplega stolt af nemendum okkar sem má segja að hafi borið þessa keppni uppi.
Hljómsveit keppninnar, sem stóð sig gríðarlega vel, var skipuð eftirfarandi nemendum tónlistarskólans:
Hrefna Logadóttir: Rafgítar
Matiss Leo Meckl: Trommur
Óskar Máni Davíðsson: Bassi
Styrmir Þeyr Traustason: Hljómborð
Þorsteinn Jakob Klemensson: Gítarar
Ýmir Haukur Guðjónsson: Saxófónn
Eik Haraldsdóttir sigraði keppnina með lagið Like a Star sem söngvaskáldið Corinne Bailey Rae samdi og gaf út á sinni fyrstu plötu 2006.
Í öðru sæti var Jóna Margrét Guðmundsdóttir með hið ofur-vinsæla Alone sem Heart systur gáfu út á þeirra níundu hljóðversplötu 1987.
Þriðja sætið hrepptu svo þeir félagar Þormar Ernir Guðmundsson og Þorsteinn Jakob Klemenzson, sem saman skipa dúettinn TOR. Þeir fluttu lagið Haltu mér slepptu mér, sem kom út á fyrstu plötu TOR núna á gamlársdag 2020.
Við óskum hljómsveitinni, og vinningshöfum til hamingju, ásamt auðvitað öllum þáttakendum og skipuleggjendum keppninnar.
Hér að neðan má svo horfa á þessa flottu keppni: