Leikhúslög barnanna
Leikhúslög barnanna
Við viljum vekja sérstaka athygli á viðburðinum Leikhúslög barnanna sem verður á Akureyrarvöku næsta laugardag en þarna stíga á stokk bæði nemendur og kennarar við skólann og spila skemmtilega tónlist úr barnaleikritum sem flest okkar þekkja.
Viðburðurinn verður í Hamraborg kl. 14:00 laugardaginn 31. ágúst næstkomandi
Öll velkomin og ókeypis inn
*******************************************************************************************************************************************************************************
Leikhúshljómsveit Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands býður ykkur velkomin í tónlistarheim barnaleikhússins!
Á sýningunni verður leikin hress og skemmtileg tónlist úr vinsælum barnaleikritum.
Leikhússtjórarnir Arnþór Þórsteinsson og Jónína Björt Gunnarsdóttir fara með okkur í ferðalag og bregða sér í ýmis hlutverk.
Fjölskylduvæn skemmtun þar sem áhorfendum gefst tækifæri á að taka þátt í sýningunni með dansi og söng.
Af þessu mega hvorki börn né fullorðin börn missa af!
Hljómsveitarstjóri er Sóley Björk Einarsdóttir
Sérstakir gestir: nemendur úr blásarasveitum Tónlistarskólans á Akureyri
Sýningin er unnin í samstarfi við Leikfélag Akureyrar
Hér er slóð á viðburðinn á facebook og hér er viðburðurinn á vef Akureyrarvöku.