Fara í efni

Jólatónleikar í Hamraborg miðvikudaginn 12. desember kl. 18:00

Jólatónleikar í Hamraborg miðvikudaginn 12. desember kl. 18:00

Stórtónleikar allra strengja- og blásarasveita skólans ásamt tónæðis og forskólanemendum verða í Hamraborg miðvikudaginn 12. 12. ´12 kl 18.

 

Á þessum tónleikum koma fram blásara- og strengjasveitir skólans ásamt kór sem að stærstum hluta er skipaður nemendum í forskóla og tónæði, en það eru þær Kati Saarinen og Margrét Árnadóttir hafa undirbúið kórinn. Einsöngvari á tónleikunum er Þorbjörg Una Hafsteinsdóttir.
Efnisskráin er fjölbreytt þó jólalögin skipi stóran sess og lýkur tónleikunum þar sem allir þáttakendur koma fram og flytja útsetningu eftir Alberto Porro Carmona á Jólin jólin allstaðar.
Stjórnendur hljómsveitanna eru Alberto Porro Carmona, Ásdís Arnardóttir, Eydís Úlfarsdóttir og Guðmundur Óli Gunnarsson.

Allir hjartanlega velkomnir.