Fara í efni

Jólagjöf Tónak og LA

Jólagjöf Tónak og LA

Jólagjöf Tónlistarskólans á Akureyri og Leikfélags Akureyrar eru ókeypis tónleikar, laugardaginn 12. desember kl. 17:00 í Rýminu.  Þar koma fram Pálmi Gunnarsson,  Bryndís Ásmundsdóttir, Jana María Guðmundsdóttir, Ásta Magnúsdóttir, Dagmey Björk Kristjánsdóttir, Ólafur Ingi Sigurðsson auk tríó Krissa Edelstein og Stórsveit Tónlistarskólans á Akureyri undir stjórn Alberto Carmona.  Notaleg jólastund fyrir alla fjölskylduna í Rýminu.   Þeir sem vilja geta skilið eftir jólagjafir til mæðrastigsnefndar undir jólatré í Rýminu.  Gjöfunum verður komið til barna sem minna mega sín.  Miðar verða afhentir í miðasölu Samkomuhússins frá kl. 12:00 fimmtudaginn 12. desember.  Fyrstir koma, fyrstir fá!