Fara í efni

Jazzta tónleikar!

Jazzta tónleikar!

Leikið verður og sungið af hjartans list á Götubarnum í miðbæ Akureyrar í kvöld, miðvikudaginn 16. febrúar klukkan 21:00. Þá hefst röð heitra tónleika sem bera nafnið Jazzta, en það eru jazztónleikar með nýju yfirbragði á vegum Tónlistarskólans á Akureyri og Jazzklúbbs Akureyrar. 

Fjölbreyttur jazz verður í boði á Jazzta en þar leika og syngja jazzarar úr hópi kennara og nemenda við Tónlistarskólann á Akureyri, en þar kennir sannarlega ýmissra góðra grasa. Einnig mæta gestaleikarar og söngvarar eftir því sem við verður komið. 

Á fyrsta kvöldinu verður sveifla og blús í fókus en þá mun Margot Kiis syngja með Risto Laur Dúóinu. Einnig koma fram söngnemendur við Tónlistarskólann á Akureyri ásamt hljómsveitinni Marstef. 

 Aðgangur ókeypis :)