Ivan Mendez sendir frá sér retro synthasprengju
12.11.2018
Ivan Mendez sendir frá sér retro synthasprengju
Söngvarinn og lagasmiðurinn Ivan Mendez er nemandi í skapandi tónlist.
Hann var að senda frá sér lagið "Lust" sem hann kallar synthasprengju með retró blæ. Ivan syngur og spilar á öll hljóðfærin auk þess að taka upp og hljóðblanda lagið.
Lagið er nokkuð frábrugðið því sem Ivan hefur verið að gera undanfarið, en síðastliðið vor gaf hljómsveitin hans, Gringlo, út 6 laga EP plötu. Ivan segist vera mikill rokkhundur en einnig alltaf verið heillaður af hljóðgervlum og stórum hljóðheimum. Nýja lagið sameinar þetta tvennt á skemmtilegan máta.
Hér má hlusta á lagið á Spotify:
Laginu hefur einnig verið bætt á spilunarlista skapandi tónlistar, sem má nálgast hér: