Hljómsveiting Gringlo á mannlegu nótunum
Hljómsveiting Gringlo á mannlegu nótunum
Hljómsveitin Gringlo sendi frá sér nýtt lag og myndband í síðustu viku. Lagið heitir Human en myndbandið við lagið er tekið upp á Akureyri og sýnir skemmtilega mynd af mannlífinu í bænum.
Hljómsveitina sjálfa skipa þeir Ivan Mendez (söngur,gítar), Guðbjörn Hólm (bassi, bakraddir), Guðjón Jónsson (píanó,hljómborð) og Arnar Scheving (trommur, slagverk). Þeir þrír fyrstnefndu eru nemendur í Skapandi Tónlist hér við tónlistarskólann.
Sigfús Jónsson, nemandi í hljóðlist, sá um upptökur á laginu.
Lagið er það fyrsta af væntanlegri plötu Gringlo en hljómsveitin hefur verið dugleg að senda frá sér nýja og skemmtilega tónlist undanfarin misseri.
Lagið er einnig komið á helstu streymisveitur. Hér má hlusta á það á Spotify:
Lagið er líka komið á spilunarlista skapandi tónlistar