Fara í efni

Hljómsveitartónleikar í Hofi

Hljómsveitartónleikar í Hofi

Council Rock North Orchestra frá Pennsylvania kemur í heimsókn til Akureyrar á pálmasunnudag og heldur þar tónleika klukkan 14:00 ásamt nemendum Tónlistarskólans á Akureyri. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Tschaikovsky, Del Borgo, Narro, Jón Leifs og fleiri. 

Council Rock North Orchestra leikur undir stjórn Joshua Crooke og hljómsveit TA er stjórnað af Ásdísi Arnardóttur. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.