Heilnótan - Samkeppni í tónsmíðum fyrir 4. - 10. bekk
15.03.2018
Heilnótan - Samkeppni í tónsmíðum fyrir 4. - 10. bekk
Heilnótan er samkeppni í tónsmíðum fyrir 4.-10 bekk í grunnskólum á Akureyri og nágrenni. Ungt fólk er hvatt til að senda inn tónsmíðar óháð stíl á rafrænu formi, nótnaskrift eða með hljóðritun. Skilafrestur er 15. april. Við hvetjum unga nemendur okkar til að senda inn lög í þessa skemmtilegu keppni.