Fara í efni

Gringlo gefur út nýtt lag

Gringlo gefur út nýtt lag

Hljómsveitin Gringlo, sem áður kallaði sig Ginglombian,  sendi nýlega frá sér sitt fyrsta tónlistarmyndband við lagið Light of New Day. 

Ivan Mendez söngvari og stofnandi sveitarinnar, ásamt þeim Guðjóni Jónssyni hljómborðsleikara, og Loga Helgasyni slagverksleikara eru nemendur í nýrri deild tónlistarskólans, sem er kölluð skapandi tónlist.  Í hljómsveitinni er einnig Guðbjörn Hólm bassaleikari.

Hljóðupptökur fóru fram í hljóðveri Tónlistarskólans á Akureyri síðasta haust, en myndbandið var svo tekið upp nokkru síðar.

Lagið er fyrsta lag af væntanlegri EP plötu sem er lokaverkefni Ivans í skapandi tónlist hér við skólann.