Framhaldsprófstónleikar Þorvaldar Arnar
14.05.2012
Framhaldsprófstónleikar Þorvaldar Arnar
Þorvaldur Örn Davíðsson píanóleikari heldur framhaldsprófstónleika sína kl 15 fimmtudaginn 17. maí, uppstigningardag, í Hömrum.
Þorvaldur Örn Davíðsson píanóleikari heldur framhaldsprófstónleika sína kl 15 fimmtudaginn 17. maí, uppstigningardag, í Hömrum.
Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Bach, Beethoven, Chopin, Gershwin og Gillespie auk frumflutnings á nýju íslensku verki fyrir píanó og slagverk.
Meðleikarar eru þeir Emil Þorri Emilsson slagverksleikari og Stefán Daði Ingólfsson bassaleikari. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.