Fara í efni

Framhaldsprófstónleikar Sigurdísar Söndru

Framhaldsprófstónleikar Sigurdísar Söndru

Sigurdís Sandra Tryggvadóttir píanóleikari heldur framhaldsprófstónleika sína laugardaginn 27. apríl kl 14.

Sigurdís Sandra Tryggvadóttir píanóleikari heldur framhaldsprófstónleika sína laugardaginn 27. apríl kl 14.  Á efnisskránni eru verk eftir Bartók, Chopin, Haydn og Mozart auk tónverks eftir Sigurdísi Söndru. Meðleikarar eru þær Auður Eva Jónsdóttir selló, Agla Arnarsdóttir víóla, Steinunn Atladóttir fiðla og Þórunn Bjarnadóttir  fiðla. Tónleikarnir fara fram í Hömrum og eru allir velkomnir.