Fara í efni

Foreldravika 25.-29.janúar

Foreldravika 25.-29.janúar

Vikuna 25.-29. janúar er foreldravika í tónlistarskólanum.  Kennsla verður óbreytt en foreldrar eru velkomnir í tíma með nemendum.  Er þetta gert til þess að stuðla að betri samskiptum og samvinnu við heimili nemendanna og veita foreldrum/forráðamönum meiri innsýn í tónlistarnám barna sinna.  það hefur sýnt sig að árangur verður meiri þar sem nemendur fá stuðning heima fyrir auk þess sem aðstandendur skilji betur út á hvað námið gangi.  Auk þess að koma með börnum í einkatíma hvetjum við til þess að aðstandendur komi líka í samspilstíma barnanna og tónfræði.