Fara í efni

Foreldravika

Foreldravika

Vikan 21. – 25. jan. 2013 er foreldravika í Tónlistarskólanum. Kennsla verður óbreytt en foreldrar eru boðaðir í tíma með nemendum. Er þetta gert til að stuðla að betri samskiptum og samvinnu við heimili nemendanna og veita foreldrum/forráðamönnum meiri innsýn í tónlistarnám barna sinna.

Vikan 21. – 25. jan. 2013 er foreldravika í Tónlistarskólanum. Kennsla verður óbreytt en foreldrar eru boðaðir í tíma með nemendum. Er þetta gert til að stuðla að betri samskiptum og samvinnu við heimili nemendanna og veita foreldrum/forráðamönnum meiri innsýn í tónlistarnám barna sinna. Það hefur sýnt sig að árangur verður meiri þar sem nemendur fá stuðning heima fyrir.

Einnig eru foreldrar velkomnir á hljómsveitaræfingar og aðra tíma. Hafið samband við viðkomandi kennara til upplýsingar um stað og stund.