Flammeus með nýtt lag á jóladag
Flammeus með nýtt lag á jóladag
Flammeus er listamannsnafn Tuma Hrannar-Pálmasonar. Hann hefur nú gefið út annað lagið af væntanlegri breiðskífu.
Lagið "It" var upprunalega samið á kassagítar þegar Tumi datt niður á skemmtilega óvenjulega hljóma í E-dúr. Hann var ný orðinn 16 ára. Þetta var semsagt í mars/apríl 2014. Sumarið eftir það fór Tumi með fjölskyldunni í ferð um England og þau stoppuðum meðal annars í London. Þar settist hann undir tré í almenningsgarði í blíðskaparveðri og samdi textann við lagið. Hann er innblásinn af einföldu hlutunum sem færa okkur hamingju í lífinu, eins og að mæta fólki með brosi og heilsa.
Lagið var mjög fljótt að smella hjá strákunum á æfingu þegar Tumi sýndi hinum það fyrst, enda hentar það dýnamíkinni í bandinu mjög vel, verandi frekar fönk-miðað í eðli sínu.
Lagið er komið á helstu streymisveitur.
Hér má hlusta á lagið á Spotify.
Lagið er einnig komið á spilunarlista Skapandi Tónlistar: