Flammeus gefa út lagið Birch
04.04.2020
Flammeus gefa út lagið Birch
Hljómsveitin Flammeus sem er skipuð núverandi og fyrrverandi nemendum Tónlistarskólans á Akureyri situr ekki auðum höndum. Hljómsveitin var að senda frá sér lagið "Birch" sem er afar huggulegt lag í anda hinna stórkostlegu Bítla. Lagið er kassagítardrifið en inniheldur að sjálfsögðu fleiri hljóðfæri, svo sem ansi skemmtilegt slagverk og strengi. Lagið er gott dæmi um samvinnu nemenda í tónlistarskólanum, en í þessu lagi sameinast nemendur í rytmískri deild, klassískri deild og skapandi tónlist, auk fyrrum nemenda skólans.
Lagið er gefið út á stafrænum hætti á helstu streymisveitum veraldarvefsins. Hér má nálgast það á Spotify:
Lagið er að sjálfsögðu komið á spilunarlista Skapandi Tónlistar