Egill og Eik senda frá sér lagið Morgunsár
04.05.2021
Egill og Eik senda frá sér lagið Morgunsár
Morgunsár er fyrsta lag af fyrstu plötu Eikar og Egils.
Platan heitir Lygasögur og kemur út í júní.
Eik og Egill eru 18 og 19 ára Akureyringar og hafa spilað saman síðan þau voru 14 og 15 ára. Eik útskrifast nú í vor með framhaldspróf í dægurlagasöng, en Egill er á fyrsta ári af þremur í Skapandi Tónlist.
Lagið fjallar um söknuð og líkir morgunsári við líkamlegt meiðsli.
Lagið er líka komið á Spotify og á spilunarlista Tónak