Fara í efni

Djassnámskeið 1. febrúar.

Djassnámskeið 1. febrúar.

Fimmtudaginn 1. febrúar fáum við til okkar góða gesti frá Noregi. Sá sem fer fyrir hópnum er Odd André Elveland sem er skólastjóri djass-tónlistarskóla fyrir krakka í Ósló - http://www.improbasen.no

Haldin verða tvö námskeið fyrir nemendur skólans í að leika djass, fimmtudaginn 1. febrúar. Það er ekki nauðsynlegt hafi reynslu í að spila jass og eru allir nemendur skólans velkomnir á námskeiðin:

  1. kl. 13:00 - 15:00 - námskeið fyrir nemendur 7-13 ára.
  2. kl. 16:00-18:00 - námskeið fyrir nemendur eldri en 13 ára.

Ef þú hefur áhuga á að fara á námskeið talaðu þá um það við hljóðfæra-/söngkennara þinn, eða hringdu á skrifstofu tónlistarskólans og biddu Ágústu um að skrá þig.