Fara í efni

Diana Sus sendir frá sér tónlistarmyndband

Diana Sus sendir frá sér tónlistarmyndband

Nemendur í skapandi tónlist hér við Tónlistarskólann á Akureyri hafa verið duglegir að senda frá sér tónlist í vetur.  Nú nýverið sendi Diana Sus frá sér lagið "Just Begun (Moso Song)".  

Diana, sem er frá Lettlandi, hefur verið búsett á Íslandi í rúmt ár, og flutti hingað norður til okkar síðastliðið haust til að stunda nám í skapandi tónlist.  Diana hefur starfað í heimalandi sínu sem söngkona og lagahöfundur, en hún spilar m.a. indie rokk, þjóðlagatónlist, rockabilly og jazz.

Myndbandið var tekið upp í Riga, Lettlandi en Diana sótti innblástur til Mosfellsbæjar, þar sem hún bjó síðastliðið sumar.